Quantcast
Channel: mbl|Sjónvarp - Út úr skápnum
Viewing all articles
Browse latest Browse all 81

Viðskipti: Kaffitár 2

$
0
0
Viðskipti: Kaffitár 2„Við erum eins og húsmóðirin sem allt í einu fékk allt í einu sykur og fór að baka rosalega mikið af kökum og þegar maður kemur í heimsókn eru 6 kökur í boði. Mér finnst við svolítið vera að stíga þessi skref og það er mikið af því sama í boði þegar kemur að þjónustu við ferðamenn.“ Þetta segir Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi og forstjóri Kaffitárs, í þættinum Viðskipti með Sigurði Má. Hún segir ferðamannastrauminn hafa gert mjög mikið fyrir þjónustu og ásýnd miðbæjarins og að þegar mest lætur á sumrin verði til ákveðinn stórborgarbragur. Hún segir þó að Íslendingar hafi lengi reynt að bjóða ferðamönnum upp á þjónustu sem þeir vilji ekkert endilega, en á móti hafi vantað hluti sem ferðamennirnir sækja í. Nefnir hún í því samhengi að fyrir nokkrum árum hafi ferðamenn átt erfitt með að finna stað sem bauð upp á sér íslenskan mat, sem mikil aðsókn hafi verið í.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 81