Quantcast
Channel: mbl|Sjónvarp - Út úr skápnum
Viewing all 81 articles
Browse latest View live

Út úr skápnum: „Erfiðast að segja 5 ára dóttur minni“

$
0
0
Út úr skápnum: „Erfiðast að segja 5 ára dóttur minni“ Hafdís Hinriksdóttir var 27 ára þegar hún kom út úr skápnum. „Þetta er þvílíkt frelsi. Maður getur loksins fengið að vera sú sem maður er“, segir Hafdís um reynslu sína í glænýjum þætti á MBL Sjónvarpi. „Mér fannst erfiðast að segja 5 ára dóttur minni“, segir Hafdís en hún segir að viðbrögð hennar hafi komið sér á óvart.

Út úr skápnum: „Kærastan sú fyrsta sem ég sagði frá“

$
0
0
Út úr skápnum: „Kærastan sú fyrsta sem ég sagði frá“„Frekar ætlaði ég lifa bara óhamingjusamur svokölluðu eðlilegu lífi, eða bara sleppa því að lifa, frekar en að fara viðurkenna eitthvað svona,“ segir Gunnlaugur Bragi Björnsson 23 ára Hornfirðingur sem kom út úr skápnum fyrir nokkrum árum. Saga Gunnlaugs er til umfjöllunar í nýjasta þætti af Út úr skápnum á MBL Sjónvarpi.

„Hefði viljað segja mömmu og pabba sjálfur“

$
0
0
„Hefði viljað segja mömmu og pabba sjálfur“„Það var alltaf strákur í skólanum sem mér þótti svo sætur en ég vissi ekkert hvað það þýddi,“ segir Elís Veigar Ingibergsson sem kom út úr skápnum þegar hann var 18 ára. „Ég vissi að ég væri samkynhneigður þegar ég var 16 eða 17 ára en það var fyrst 18 ára sem ég gat horft á sjálfan mig í spegli og viðurkennt það“.

Áttaði sig á samkynhneigð sinni 6 ára

$
0
0
Áttaði sig á samkynhneigð sinni 6 ára„Að vera hommi á þessum tíma var alltaf þessi spurning um hvort maður væri með alnæmi,“ segir Heimir Már Pétursson. Hann áttaði sig snemma á því að hann var samkynhneigður. „Ég hélt lengi að allir strákar væru eins og ég. Það var dálítið sjokk að komast að því að svo var ekki,“ segir Heimir í þættinum Út úr skápnum hér á MBL Sjónvarpi.

„Stundum vildi ég að ég væri ekki samkynhneigður“

$
0
0
„Stundum vildi ég að ég væri ekki samkynhneigður“„Stundum efast ég um að sá lífsstíll sem ég hef valið henti mér,“ segir Hafsteinn Þór Guðjónsson sem er betur þekktur sem Haffi Haff. „Ég hugsa oft um að eignast fjölskyldu. Það mun þó ekki breyta kynhneigð minni. En þetta kemur þó oft upp í huga mér,“ segir Haffi.

Fékk ekki tækifæri til að segja: „Mamma ég er lesbía"

$
0
0
 „Mamma, ég er lesbía" Kidda rokk er 38 ára þriggja barna móðir, smiður að mennt, sem er að klára nám í félagsráðgjöf. Hún hefur verið gift sömu konunni í níu ár. Kidda undirbjó sig vel áður en hún kom út úr skápnum gagnvart foreldrum sínum. Sá undirbúningur reyndist óþarfur. Kidda segir sögu sína í þættinum Út úr skápnum hér á MBL Sjónvarpi.

Samkynhneigð var ekki til

$
0
0
Samkynhneigð var ekki tilÞorvaldur Kristinsson fæddist árið 1950. Þegar hann var að alast upp var ekki til neitt sem hét samkynhneigð. „Þjáningin okkar í þá daga varði miklu lengur," segir Þorvaldur um reynslu sína að koma út úr skápnum. „Strákar voru alltaf til staðar í draumum mínum, ekki stelpur."

Lifir „hinsegin“ lífi á Íslandi

$
0
0
Lifir „hinsegin“ lífi á Íslandi Anita Rübberdt var orðin 17 ára þegar hún hitti lesbíu í fyrsta sinn. Síðar áttaði hún sig á því að hún var skotin í þessari stelpu. 28 ára (2009) flutti Anita til Íslands og hóf þá að lifa hinsegin lífi. „Ég kalla mig ekki lesbíu, frekar hinsegin, einfaldlega af því að ég veit ekki hvað gerist í framtíðinni.“

„Vildi ekki kyssa kærusturnar mínar“

$
0
0
„Vildi ekki kyssa kærusturnar“Það kom fáum á óvart þegar Guðmundur Smári kom út úr skápnum. ,,Smári minn, ertu viss um að þú sért ekki bara hommi?" spurði mamma hans hann þegar hann var sextán ára. Fyrsta kærastan hætti svo með honum af því að hann vildi ekki kyssa hana.

„Þetta mátti ekki fréttast"

$
0
0
„Þetta mátti ekki fréttast“ Sigurður J. Guðmundsson lenti í einelti í barnæsku og fannst ekki á það bætandi að upplýsa heiminn um að hann væri samkynhneigður. „Þetta var mitt leyndarmál og ég ætlaði að deyja með það,“ segir Sigurður sem síðar fann sína leið út úr skápnum. Sigurður segir sögu sína hér í Út úr skápnum á mbl.

Kom óvart út úr skápnum

$
0
0
Anna kom óvart úr úr skápnum„Þetta er örugglega eitt af því minnst planaða sem ég hef gert,“ segir Anna Pála, sem upplýsti heiminn um samkynhneigð sína í ræðu sem hún hélt hjá ungum jafnaðarmönnum. Anna Pála segir sögu sína í Út úr skápnum í MBL sjónvarpi.

„Skildi sjálfa mig þegar ég kyssti konu í fyrsta sinn“

$
0
0
„Óhamingjusöm og ólukkuleg“ Margrét Pála Ólafsdóttir, leikskólastjóri og höfundur Hjallastefnunnar, segist alltaf hafa fundið að hún var öðruvísi. Það var hins vegar ekki fyrr en hún kyssti konu í fyrsta skipti 26 ára að það rann upp fyrir henni að hún væri samkynhneigð.

14 ára út úr skápnum

$
0
0
14 ára út úr skápnum Eyjólfur Kristopher Kolbeins var aðeins fjórtán ára þegar hann kom út úr skápnum. „Pabbi var alltaf kallaður ofurpabbinn,“ segir Eyjólfur, sem er þakklátur föður sínum fyrir stuðninginn þegar skrefið var stigið. Rætt er við Eyjólf og föður hans í þættinum Út úr skápnum hér á mbl sjónvarpi.

Kom út úr skápnum daginn fyrir ferminguna

$
0
0
Út úr skápnum degi  fyrir ferminguÁstrós Lind Halldórudóttir uppgötvaði snemma að hún væri lesbía. Daginn fyrir ferminguna sína kom hún út úr skápnum gagnvart nánustu fjölskyldu og var vel tekið.

vidskipti 27feb olof yrr

$
0
0
Markmiðið ekki að keppa niður á við í verðiÍslendingar þurfa að horfa á gæðin umfram lágt verð þegar kemur að ferðamannageiranum. Þetta segir Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, í þættinum Viðskipti með Sigurði Má.

Þjófnaður úr verslunum

$
0
0
Greinir á um þróunina Lögreglu og Samtök verslunar og þjónustu greinir á um þróunina í búðaþjófnaðamálum. Lögregla geti aðeins byggt tölfræði sína á tilkynningum um þjófnaði en verslanir meti gjarnan út frá rýrnun. Því telja verslanir að aukningin sé gríðarleg en lögregla telur fjölda þjófnaðarbrota í jafnvægi.

vidskipti 6mars gunnar

$
0
0
Ísland ekki sambærilegt við Noreg Ekki er hægt að bera saman lagningu sæstrengs frá Noregi til Evrópu og frá Íslandi til Evrópu. Þetta segir Gunnar Haraldsson, forstöðumaður hagfræðistofnunar Háskóla Íslands í þættinum Viðskipti með Sigurði Má. Rætt hefur verið um að leggja 700 megavatta, en uppsett afl raforkuvera hérlendis um 2600 megavött.

vidskipti 9mars gunnar

$
0
0
Áliðnaðurinn enn óþróaður hérlendisÞrátt fyrir að útflutningsverðmæti sjávarútvegsins og áliðnaðarins sé svipað þá er hlutur sjávarútvegsins af landsframleiðslu mun meiri. Þetta stafar meðal annars af því að áliðnaðurinn hefur ekki verið lengi í þeirri stærðargráðu sem hann er í dag. Enn eru miklir þróunarmöguleikar í stöðunni fyrir greinina.

vidskipti 13mars

$
0
0
Vilja ljúka Evrópusambandsviðræðum„Við viljum opið hagkerfi, við viljum að peningarnir geti leitað á rétta staði og við viljum geta skapað samkeppnishæft viðskipta- og rekstrarumhverfi hér.“ Þetta segir Svava Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, þegar hún er spurð um afstöðu iðnaðarins varðandi Evrópusambandsmál.

Keppt um bestu portrett-myndina

$
0
0
Keppt um bestu portrett-ljósmyndinaÍ tengslum við Ljósmyndakeppni Íslands efnir mbl.is á næstu vikum til nokkurra ljósmyndakeppna á vefnum. Þemað fyrstu keppninnar er portrett.
Viewing all 81 articles
Browse latest View live