Quantcast
Channel: mbl|Sjónvarp - Út úr skápnum
Viewing all 81 articles
Browse latest View live

Viðskipti: Helgi S. Gunnarsson - Reginn2

$
0
0
Segir bankana skrúfa verðið upp Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, segir að hann hafi áhyggjur af því að bankar og sjóðir í þeirra eigu séu að skrúfa upp verð á vel staðsettum atvinnueignum. Spyr hann sig hvort það sé með vilja gert að eignunum sé haldið hjá bönkunum, eða hvort ekki sé geta fyrir hendi.

vidskipti margret kr 1

$
0
0
„Auðvitað höfum við áhyggjur“„Staðan er ekki góð, kaupmáttur almennings er of lítill þannig að þær krónur sem eru eftir í launaumslagi fólks þegar það hefur borgað af húsnæðinu, lánunum, leigunni og búið að kaupa í matinn, þá eru of fáar krónur eftir í umslaginu svo almenn sérvöruverslun fái þrifist vel.“ Þetta segir Margrét Kristmannsdóttir.

CrossfitTV-ep2 fyrir MBL

$
0
0
Áskorendakeppni Crossfit Reykjavík Ekki missa af öðrum þættinum af áskorendakeppni Crossfit Reykjavík

Viðskipti: Kaffitár

$
0
0
Mikið af því sama fyrir ferðamenn Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi og forstjóri Kaffitárs, segir að Íslendingar séu mikið að stíga í þá átt að vera með það sama í boði þegar kemur að þjónustu við ferðamenn. Hún segir ferðamannastrauminn hafa gert mjög mikið fyrir þjónustu og ásýnd miðbæjarins og að þegar mest lætur á sumrin verði til ákveðinn stórborgarbragur.

Aumingi

$
0
0
Punkturinn: Læknaskoðun Punktsmenn eru mættir aftur með glænýjan skets.

Viðskipti: Kaffitár 2

$
0
0
Viðskipti: Kaffitár 2„Við erum eins og húsmóðirin sem allt í einu fékk allt í einu sykur og fór að baka rosalega mikið af kökum og þegar maður kemur í heimsókn eru 6 kökur í boði. Mér finnst við svolítið vera að stíga þessi skref og það er mikið af því sama í boði þegar kemur að þjónustu við ferðamenn.“ Þetta segir Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi og forstjóri Kaffitárs, í þættinum Viðskipti með Sigurði Má. Hún segir ferðamannastrauminn hafa gert mjög mikið fyrir þjónustu og ásýnd miðbæjarins og að þegar mest lætur á sumrin verði til ákveðinn stórborgarbragur. Hún segir þó að Íslendingar hafi lengi reynt að bjóða ferðamönnum upp á þjónustu sem þeir vilji ekkert endilega, en á móti hafi vantað hluti sem ferðamennirnir sækja í. Nefnir hún í því samhengi að fyrir nokkrum árum hafi ferðamenn átt erfitt með að finna stað sem bauð upp á sér íslenskan mat, sem mikil aðsókn hafi verið í.

Punkturinn: Syrpan

$
0
0
Punkturinn: Syrpa Snillingarnir í punktinum hafa nú skemmt lesendum Monitor í tvær vikur. Hér má sjá alla fyrstu sketsanna frá þeim félögum á einum stað.

Garðaþjónusta Sigfinnsbræðra

$
0
0
Garðaþjónusta Sigfinnsbræðra Punkturinn er í góðum tengslum við hina ýmsu útkima atvinnulífsins.

Ránið Mikla

$
0
0
Ránið mikla Punkturinn skipuleggur rán aldarinnar.

Útfærslur á náttúrupassa fyrir áramót

$
0
0
Útfærslur á náttúrupassa fyrir áramót Samtök ferðaþjónustu eru opin fyrir því að taka upp einhverskonar náttúrupassa og hafa þegar verið í samskiptum við nýskipaðan iðnaðar- og viðskiptaráðherra vegna málsins. Búast má við því að nánari útfærsla á slíkum hugmyndum verði kynnt áður en árið er á enda. Þetta segir Árni Gunnarsson, formaður samtaka ferðaþjónustunnar

Punkturinn: Reykingar

$
0
0
Punkturinn: Reykingar Punkturinn byrjar þennan föstudag á brakandi ferskum skets

Upplifa svipaða fækkun og eftir hrunið

$
0
0
Upplifa svipaða fækkun og eftir hrunið Töluverð fækkun hefur verið í farþegaflugi innanlands frá í apríl á síðasta ári. „Við tengjum það breytingum á opinberum gjöldum þá, það voru miklar hækkanir á lendingargjöldum og farþegagjöldum sem við höfðum ekki tök á öðru en að setja út í verðlagið,“ segir Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélag Íslands.

Punkturinn: Syrpa vikunnar

$
0
0
Punkturinn: Syrpa vikunnar Monitor kynnir sketsa vikunnar frá snillingunum í Punktinum.

Út úr skápnum: „Erfiðast að segja 5 ára dóttur minni“

$
0
0
Út úr skápnum: „Erfiðast að segja 5 ára dóttur minni“ Hafdís Hinriksdóttir var 27 ára þegar hún kom út úr skápnum. „Þetta er þvílíkt frelsi. Maður getur loksins fengið að vera sú sem maður er“, segir Hafdís um reynslu sína í glænýjum þætti á MBL Sjónvarpi. „Mér fannst erfiðast að segja 5 ára dóttur minni“, segir Hafdís en hún segir að viðbrögð hennar hafi komið sér á óvart.

Út úr skápnum: „Kærastan sú fyrsta sem ég sagði frá“

$
0
0
Út úr skápnum: „Kærastan sú fyrsta sem ég sagði frá“„Frekar ætlaði ég lifa bara óhamingjusamur svokölluðu eðlilegu lífi, eða bara sleppa því að lifa, frekar en að fara viðurkenna eitthvað svona,“ segir Gunnlaugur Bragi Björnsson 23 ára Hornfirðingur sem kom út úr skápnum fyrir nokkrum árum. Saga Gunnlaugs er til umfjöllunar í nýjasta þætti af Út úr skápnum á MBL Sjónvarpi.

„Hefði viljað segja mömmu og pabba sjálfur“

$
0
0
„Hefði viljað segja mömmu og pabba sjálfur“„Það var alltaf strákur í skólanum sem mér þótti svo sætur en ég vissi ekkert hvað það þýddi,“ segir Elís Veigar Ingibergsson sem kom út úr skápnum þegar hann var 18 ára. „Ég vissi að ég væri samkynhneigður þegar ég var 16 eða 17 ára en það var fyrst 18 ára sem ég gat horft á sjálfan mig í spegli og viðurkennt það“.

Áttaði sig á samkynhneigð sinni 6 ára

$
0
0
Áttaði sig á samkynhneigð sinni 6 ára„Að vera hommi á þessum tíma var alltaf þessi spurning um hvort maður væri með alnæmi,“ segir Heimir Már Pétursson. Hann áttaði sig snemma á því að hann var samkynhneigður. „Ég hélt lengi að allir strákar væru eins og ég. Það var dálítið sjokk að komast að því að svo var ekki,“ segir Heimir í þættinum Út úr skápnum hér á MBL Sjónvarpi.

„Stundum vildi ég að ég væri ekki samkynhneigður“

$
0
0
„Stundum vildi ég að ég væri ekki samkynhneigður“„Stundum efast ég um að sá lífsstíll sem ég hef valið henti mér,“ segir Hafsteinn Þór Guðjónsson sem er betur þekktur sem Haffi Haff. „Ég hugsa oft um að eignast fjölskyldu. Það mun þó ekki breyta kynhneigð minni. En þetta kemur þó oft upp í huga mér,“ segir Haffi.

„Mamma, ég er lesbía"

$
0
0
 „Mamma, ég er lesbía" Kidda rokk er 38 ára þriggja barna móðir, smiður að mennt, sem er að klára nám í félagsráðgjöf. Hún hefur verið gift sömu konunni í níu ár. Kidda undirbjó sig vel áður en hún kom út úr skápnum gagnvart foreldrum sínum. Sá undirbúningur reyndist óþarfur. Kidda segir sögu sína í þættinum Út úr skápnum hér á MBL Sjónvarpi.

Samkynhneigð var ekki til

$
0
0
Samkynhneigð var ekki tilÞorvaldur Kristinsson fæddist árið 1950. Þegar hann var að alast upp var ekki til neitt sem hét samkynhneigð. „Þjáningin okkar í þá daga varði miklu lengur," segir Þorvaldur um reynslu sína að koma út úr skápnum. „Strákar voru alltaf til staðar í draumum mínum, ekki stelpur."
Viewing all 81 articles
Browse latest View live